Málbjörg
  • Leit
  • Menu Canvas
    • Heim
    • Um stam
      • Stam í fjölskyldum
      • Stam fullorðinna
      • Stam lítilla barna
      • Stam skólabarna
      • Stamar þú?
    • Upplýsingar
      • Meðferðir við stami
      • Hagnýt ráð
      • Algengar spurningar
    • Fréttir & Greinar
    • Viðburðir
    • Málbjörg
    • Hafa samband
Málbjörg
  • Heim
  • Um stam
    • Stam í fjölskyldum
    • Stam fullorðinna
    • Stam lítilla barna
    • Stam skólabarna
    • Stamar þú?
  • Upplýsingar
    • Algengar spurningar
    • Talmeinafræðingar
  • Fréttir & Greinar
  • Málbjörg
  • Hafa samband

Stam skólabarna

Heim Um stam Stam skólabarna

Stam grunnskólabarna

Börn sem stama þegar komið er á grunnskólaaldur eru líklegri en yngri börn til að þurfa að glíma við þennan vanda fram á fullorðins ár. Rannsóknir hafa sýnt að því seinna sem börn byrja að stama, því meiri líkur eru á að stamið sé varanlegt. Það er því mikilvægt á þessum aldri að grípa strax til viðeigandi ráðstafana og reyna að koma í veg fyrir að stamið þróist og festist.

Rétt er að leita ráða hjá talmeinafræðingi strax og stams verður vart.

Mjög algengt er að börn á þessum aldri vilji ekki ræða um stamið. Þau hafa um margt annað að hugsa en hvernig þau tala. Mikilvægt er þó að ræða við barnið um stamið á jákvæðan hátt þannig að það finni stuðning.

Stam er ekki feimnismál. Ef stamið er ekki rætt getur barninu fundist það vera að gera eitthvað sem það má ekki. Gott er til dæmis fyrir kennara að ræða óhikað um stamið við barnið sem stamar og spyrja það hvernig því finnist best að kennari hagi sér varðandi það.

Börn í skóla geta yfirleitt lesið í kór án erfiðleika og er það gott ráð ef barn á erfitt að lesa upphátt að spyrja það hvort það vilji að einhver lesi með því í kór. Jafnvel er stundum hægt að láta allan bekkinn lesa í pörum. Ef barnið stamar mikið er mjög brýnt að sýna barninu jákvæðan stuðning án þess þó að hlífa því.

Gott er að gefa barninu nægan tíma til að tjá sig og fullvissa það um að engin muni taka orðið af því. Mikilvægt er að viðurkenna stamið sem fötlun og að haga kennslunni í samræmi við getu og þarfir barnsins sem stamar eins og annarra. Ekki er gott að láta þau bíða of lengi eftir að röðin komi að þeim.

Börn á grunnskólaaldri sem stama þurfa stuðning foreldra sinna, kennara og samnemenda. Talþjálfun nýtist mjög vel þó hún sé ekki eins árangursrík og hjá leikskólabörnum.

Um Stam

  • Stamar þú?
  • Stam skólabarna
  • Stam lítilla barna
  • Stam fullorðinna
  • Stam í fjölskyldum

Flýtileiðir

  • Hvað er stam?
  • Af hverju stama ég?
  • Hvað er til ráða?
  • Hverjir stama?
  • Um Stam.is
  • Skráning í félagið
  • Hafa samband
Málbjörg
Málbjörg - Félag um stam á Íslandi

Stam.is er upplýsingavefur um stam sem er unninn og haldið uppi af Málbjörg.

Málbjörg er fyrir fólk sem stamar og aðstandendur þeirra. Markmið félagsins er að stuðla að umræðu um stam og vera vettvangur fyrir sjálfshjálp.
Lestu nánar um okkur.

©2022 stam.is - Allur réttur áskilinn
LeitaFréttirInnskráning
Miðvikudagur, 26, maí
Aðalfundur 31. maí 2021
Fimmtudagur, 22, okt
Ávarp formanns, ISAD 2020 – Alþjóðlegum vitundarvakningardegi um stam
Miðvikudagur, 1, maí
Heimsráðstefna um stam, Hveragerði 2019.
Þriðjudagur, 23, apr
Rannsókn: Félagskvíði, ótti við neikvætt mat annara og öryggishegðun þeirra sem stama og stama ekki
Mánudagur, 27, ágú
Málbjörg sýnir When I Stutter

Welcome back,