Alþjóðlegur vitundarvakningardagur um stam

Fimmtudaginn 22.október er Alþjóðlegur vitundarvakningardagur um stam.

Fimmtudaginn 22.október er Alþjóðlegur vitundarvakningardagur um stam.

Að því tilefni er efnt til rafrænnar ráðstefnu ISAD (International Awarness Day), eins og verið hefur undanfarin ár.

Heimasíða ráðstefnunnar er ISAD og er hún öllum opin og að kostnaðarlausu. Einungis þarf að skrá sig inn á ráðstefnuna. Nálgast má ýmis forvitnileg myndbönd og greinar þar inni. Þar á meðal eru frásagnir og reynsla fólks sem stamar, rannsóknir, talþjálfun og stuðningur, skapandi tjáning og efni fyrir börn. Allt efnið er opið út októbermánuð.

Hér má finna lista yfir það sem er í boði.

Sveinn Snær Kristjánsson, formaður Stamfélags Íslands, er með erindi á ráðstefnunni. Það fjallar um nýtt myndmerki félagsins, en Sveinn Snær er hönnuður þess. Hann er grafískur hönnuður og forvitnilegt er að fræðast um vinnu hans við merkið og hugmyndirnar á bakvið það.

Við hvetjum alla til að kynna sér efni ráðstefnunna.

Scroll to Top