The Michael Palin Center í London sérhæfir sig í fræðslu og ráðleggingum um stam, til kennara, meðferðaraðila, foreldra barna sem stama og almennings. Hlutverk miðstöðvarinnar er m.a. að efla vitund kennara um stam og ýmsar ráðleggingar, en hægt er að nálgast þær á vefsíðu þeirra. (Michael Palin Center, 2018)
Eftirfarandi eru ráðleggingar til kennara um hvernig skal nálgast börn sem stama, frá Michael Palin Center í London:
- Ráðlagt er að kennari hittir nemandann til að tala um stamið og ræða hvaða leiðir gætu verið sniðugar til þess að gera streituvaldandi aðstæður þægilegri fyrir nemandann, t.d. að standa fyrir framan bekkinn og halda kynningu.
- Kennari skal vera sveigjanlegur þegar kemur að munnlegum verkefnum. Er hægt að skilaþeim öðruvísi? Þarf að vera tímapressa á verkefninu og þarf nemandinn að flytja verkefnið fyrir framan stóran hóp?
- Vísa nemandanum til talmeinafræðings ef þess þarf.
- Gefðu nemanda færi á að tala og gefðu þeim tíma til þess að tala.
- Kennari skal hafa í huga að forðast ekki augnsamband við nemenda sem stamar.
- Kennari skal halda ró sinni og hraða ekki samræðum.
- Ekki giska á hvaða orð nemandi ætlar að segja eða reyna að klára setningar.
- Mikilvægt er að kennarar hlusti á það sem barnið er að segja, en ekki hvernig það talar.
- Kennari skal passa að deila upplýsingum um nemanda meðal annarra kennara, sérstaklega þegar hann skiptir um bekk.
- Kennari skal hafa samband við talmeinafræðing nemandans til þess að ræða um þær áhyggjur sem koma upp og þær leiðir til þess að hafa stjórn á stami í tíma
Heimild
Michael Palin Center. (2018). Resources for Teachers. Sótt 28.02.2019 af
https://www.whittington.nhs.uk/default.asp?c=26681