Vorfundur Málbjargar 2024

Vorfundur Málbjargar 2024

Við áttum góðan dag saman á Vorfundi Málbjargar síðustu helgi.
Fundurinn var haldinn í fallegu umhverfi Hótel Kríuness við Elliðavatn.

Við spjölluðum mikið, um stam og ýmislegt annað, um starfsemi Málbjargar og framtíðarverkefni. Kynntum okkur Nordisk, norrænu stamráðstefnuna, fengum eðal hádegisvert og fórum í göngutúr með leiðsögn og ljóðalestri.

Takk fyrir frábæran dag, öll sem komuð!

Scroll to Top